Flotun ehf. er sérhæft fyrirtæki í lagningu flotefna. Eigandi þess er Guðmundur Björnsson múrarameistari. Fyrirtækið hefur á löngum ferli sínum þjónað byggingamarkaðinum hér heima og er þekkt fyrir vönduð vinnubrögð og gæði.
 

Gott orðspor fyrirtækisins við lagningu flotefna helgast einkum af þrennu. Í fyrsta lagi notum við aðeins gæða flotefni frá virtum framleiðendum á heimsvísu. Í öðru lagi hefur fyrirtækið yfir að ráða mjög öflugum sérhæfðum tækjakosti til að ráða við þau fjölmörgu verkefni sem markaðurinn kallar eftir. Í þriðja lagi er vert að nefna samhent og reynslumikið starfsfólk fyrirtækisins, sem vinnur eftir ströngum verkferlum.

87131226781900bilar.jpg